- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Katla María tekur þátt í sínum fyrsta HM-leik

Katla María Magnúsdóttir leikmaður Selfoss meiddist alvarlega á ökkla í undanúrslitaleiknum við Stjörnuna sem stendur yfir í Laugardalshöll. Mynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -

Selfyssingurinn Katla María Magnúsdóttir leikur sinn fyrsta leik á heimsmeistaramótinu í handknattleik í dag þegar íslenska landsliðið mætir grænlenska landsliðinu í fyrstu umferð keppninnar um forsetabikarinn. Elísa Elíasdóttir sem kom inn í liðið fyrir leikinn við Angóla heldur sæti sínu.


Jóhanna Margrét Sigurðardóttir og Katrín Tinna Jensdóttir verða utan leikmannahópsins í dag. Katrín Tinna lék þrjá fyrstu leikina.

Íslenska landsliðið verður skipað eftirtöldum leikmönnum í dag í Nord Arena í Frederikshavn í leiknum við landslið Grænlands.

Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, EH Aalborg (51/1).
Hafdís Renötudóttir, Val (52/2).
Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, Silkeborg-Voel (47/71).
Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (18/5).
Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen Zwickau (46/60).
Elín Rósa Magnúsdóttir, Val (11/21).
Elísa Elíasdóttir, ÍBV (8/6).
Hildigunnur Einarsdóttir, Val (101/114).
Katla María Magnúsdóttir, Selfossi (3/0).
Lilja Ágústsdóttir, Val (16/8).
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfossi (40/66)
Sandra Erlingsdóttir, Tus Metzingen (28/129).
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (82/61).
Thea Imani Sturludóttir, Val (70/142).
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val (39/31).
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (129/372).

  • Viðureign Íslands og Grænlands hefst klukkan 17. Textalýsing verður á handbolti.is frá leiknum en handbolti.is er í Frederikshavn.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -