- Auglýsing -
Kristinn Björgúlfsson, þjálfari karlaliðs ÍR, hefur beðist innilegrar afsökunar á ummælum sem hann lét falla í garð dómara leiksins ÍR og Harðar í Grill66-deild karla í handknattleik á laugardaginn. Ummælin féllu í samtali við handbolta.is.
Í yfirlýsingu sem Kristinn sendi frá sér á Twitter fyrir stundu segir hann að orð sem féllu um dómara leiksins hvorki hafa verið sér né handboltanum til sóma. „Ég biðst innilegrar afsökunar á ummælum mínum.“
Eftir leik @IR_Handbolti Harðar um helgina þar sem við töpuðum var ég vel heitur og sagði orð um dómarana sem hvorki voru mér né handboltanum til sóma. Ég biðst innilegrar afsökunnar á ummælum mínum @HSI_Iceland @handboltiis @handboltinn @VisirSport
— Kiddi Björgúlfss (@KiddiBje) November 15, 2021
- Auglýsing -