- Auglýsing -
- Auglýsing -

Kveður Stjörnuna og semur við ÍR

Ólafur Rafn Gíslason hefur samið við ÍR til ársins 2023.
- Auglýsing -

Markvörðurinn Ólafur Rafn Gíslason hefur samið við Olísdeildar lið ÍR til ársins 2023. Þetta var staðfest í gær og um leið að ÍR hafi náð samkomulagi við Stjörnuna um að leysa Ólaf undan samningi við félagið. Hann var lánaður til ÍR áður en leiktíðin hófst í haust.


„Við náðum samkomulagi við Stjörnuna á dögunum og um full félagaskipti fyrir Ólaf yfir í raðir okkar ÍR-inga. Hann hefur verið á lánssamningi hjá okkur síðan í haust,” sagði Kristinn Björgúlfsson, við handbolta.is í gærkvöld.

Ólafur Rafn tók þátt í fjórum leikjum ÍR í Olísdeildinni í september og í byrjun október.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -