- Auglýsing -
Landsliðskonan Andrea Jacobsen hefur ákveðið að flytja sig um set og ganga til liðs við danska 1. deildarliðið EH Aalborg. Félagið greinir frá þessu í morgun.
Andrea hefur undanfarin fjögur ár leikið með sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad en til félagsins kom hún frá Fjölni. Andrea á að baki 31 landsleik og var í landsliðhópnum sem tók þátt í viðureigninni við Serbíu í lokaumferð riðlakeppni Evrópumótsins.
Með komu sinni til EH Aalborg fetar Andrea í fótspor annarrar landsliðskonu, Söndru Erlingsdóttur, sem hefur undanfarin tvö ár leikið með Álaborgarliðinu. Sandra færir sig um set í sumar.
EH Aalborg hafnaði í fjórða sæti dönsku 1. deildarinnar í vor en á síðasta ári komst liðið í úrslit í umspili um sæti í úrvalsdeildina en tapaði naumlega.
- Auglýsing -