Haukar hafa náð samkomulagi við forráðamenn Parnassos Strovolou á Kýpur að báðar viðureignir liðanna í annarri umferð Evrópubikarkeppninnar í karlaflokki í næsta mánuði fari fram á Nikósíu á Kýpur. Frá þessu er greint í tilkynningu handknattleiksdeildar Hauka í morgun.
Leikirnir fara fram 16. og 17. október. Leikmenn og þjálfarar Hauka halda utan 14. október og koma heim hinn 19. Nokkuð strangt ferðalag bíður Hauka til eyjunnar í Miðjarðarhafi.
Parnassos Strovolou hefur tekið þátt í Evrópukeppninni undanfarin fjögur ár og býr yfir nokkurri reynslu í þeim efnum þótt úrslitin hafi ekki alltaf verið liðinu hagstæð.