Leikdagar og leiktímar úrslitaleikja Vals og spænska liðsins Conservas Orbe Zendal BM í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í næsta mánuði hafa verið staðfestir. Fyrri viðureignin fer fram í Porrino laugardaginn 10. maí. Stefnt er á að flauta til leiks klukkan 15, að íslenskum tíma.
Síðari leikurinn verður á Hlíðarenda, heimavelli Vals, laugardaginn 17. maí. Aftur verður hafist handa við leik klukkan 15. Í leikslok fer Evrópubikarinn á loft og verður það í fyrsta sinn sem slíkt á sér stað hér á landi.
Samalagður sigurvegari leikjanna tveggja verður Evrópubikarmeistari.
Conservas Orbe Zendal Bm er með bækistöðvar í bænum Porrinu skammt frá Vigo í suðvestur-Galisíu, rétt norður af landamærum Spánar og Portúgal.
Hópferð og bein útsending
Eftir því sem næst verður komist stefnir Valur á hópferð á fyrri úrslitaleikinn. Einnig hefur því verið fleygt að RÚV sýni báða úrslitaleikina.
Evrópbikarkeppni – fréttasíða.