- Auglýsing -
Handknattleikskonan Þórey Anna Ásgeirsdóttir leikur ekki meira með Valsliðinu á þessari leiktíð þar sem hún á von á barni á næstu mánuðum.
Þórey er næst markahæsti leikmaður Vals á tímabilinu og hefur verið einn af lykilmönnum liðsins í vetur og kemur sterk til baka á næsta tímabili, segir í tilkynningu á Facebook-síðu Handknattleiksdeildar Vals.
Þórey Anna kom til Vals á síðasta sumri frá Stjörnunni. Hún hefur skorað 56 mörk í 12 leikjum í Olísdeildinni á yfirstandandi leiktíð. Þórey Anna hefur einnig átt sæti í landsliðinu á síðustu árum.
Þórey Anna er þriðji leikmaður Valsliðsins sem gerir hlé á æfingum og keppni á leiktíðinni vegna barnsburðar. Hinar eru Arna Sif Pálsdóttir og Hildur Björnsdóttir.
- Auglýsing -