- Auglýsing -
Lilja Ágústsdóttir lék afar vel fyrir Lugi í dag þegar liðið vann öruggan sigur á Västerås, 30:24, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik kvenna. Lilja, sem gekk nýverið til liðs við sænska liðið tók þátt í leiknum í dag í 45 mínútur og skoraði fjögur mörk í fimm skotum.
Lugi var marki undir í hálfleik, 13:12. Leikmenn sóttu hinsvegar hressilega í sig veðrið í síðari hálfleik og skildu leikmenn Västerås eftir í rykinu.
Lugi situr í sjöunda sæti deildarinnar með 19 stig eftir 17 leiki. Västerås er næst á eftir með 17 stig en hefur leikið einum leik fleira.
Skuru-liðið er efst með 32 stig og Sävehof er þar á eftir með 30 stig og leik til góða á meistarana.
- Auglýsing -