- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ljúka FH-ingar einvíginu eða sækja Haukar oddaleik?

- Auglýsing -

Fjórða viðureign Hauka og FH í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik verður háð í kvöld í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Flautað verður til leiks klukkan 19.

FH hefur tvo vinninga en Haukar einn. Síðarnefnda liðið þarf á sigri að halda í kvöld til þess að knýja fram oddaleik í Kaplakrika á mánudagskvöld. Í úrslitum bíður einvígi við Val um Íslandsmeistaratitilinn.


Fram til þessa hefur nægt að skora 27 mörk til þess að vinna leikina enda vandaður varnarleikur verið aðal leikjanna á báða bóga. FH hafði betur í fyrstu viðureigninni, 27:21. Haukar svöruðu með sigri á heimavelli fyrir viku, 27:22. FH tók forystu í einvíginu með fjögurra marka sigri í Kaplakrika á þriðjudaginn, 27:23.

Birkir Snær Steinsson, leikmaður Hauka, leitar leiðar til þess að koma boltnum á mark FH. Varnarleikur FH hefur verið framúrskarandi í úrslitarimmunni við Hauka, ekki síst í fyrsta og þriðja leiknum. Ljósmynd/J.L.Long

Ólafi Ægi Ólafssyni leikmanni Hauka var sýnt rautt spjald 11 mínútum fyrir leikslok í þriðja leiknum. Hann var ekki úrskurðaður í leikbann á fundi aganefndar í fyrradag og verður þar af leiðandi gjaldgengur í viðureigninni í kvöld.

Þeir sem ekki komast í Kuehne+Nagel höllina á Ásvöllum í kvöld geta fylgst með leiknum í opinni dagskrá Símans og væntanlega einnig á Handboltapassanum. Flautað verður til leiks klukkan 19.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -