- Auglýsing -
- Auglýsing -

Lúðvík skrifar undir tveggja ára samning

Lúðvík Thorberg Arnkelsson verður áfram í búningi Gróttu á næsta keppnistímabili. Mynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -

Lúðvík Thorberg Arnkelsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild Gróttu. Hann er fæddur árið 1997 og kom til félagsins fyrir þremur árum frá Fram.


Lúðvík getur bæði leikið sem skytta og leikstjórnandi. Hann var talsvert frá keppni á síðasta tímabili vegna meiðsla sem gerðu að verkum að hann gat ekki beitt sér af fullum krafti allt leiktímabilið. Þrátt fyrir það skoraði Lúðvík 51 mark fyrir Gróttu.


„Það eru mikil gleðitíðindi að Lúðvík verði áfram í Gróttu enda virkilega öflugur leikmaður. Hann hefur gott auga fyrir spili og hefur stýrt leik Gróttuliðsins afskaplega vel á undanförnum árum.

Lúðvík er mjög góður handboltaleikmaður sem við lögðum kapp á að tryggja áfram í Gróttu. Það er von okkar að hann muni stíga enn frekar upp í vetur enda hefur hann alla burði í það. Við erum himinlifandi,“ sagði Róbert Gunnarsson þjálfari Gróttuliðsins í tilkynningu handknattleiksdeildar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -