Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna leikur í dag við Afríkumeistara Angóla í þriðju og síðustu umferð fjögurra liða æfingamóts sem hófst í Hamar í Noregi á fimmtudaginn og hélt áfram í Lillehammer í gær með leik við heims- og Evrópumeistara Noregs í Hákonshöll í Lillehammer.
Viðureign Íslands og Angóla hefst klukkan 16.15 og verður send út hjá RÚV auk þess sem handbolti.is verður með textalýsingu fyrir þá sem ekki hafa tök á að fylgjast með leiknum í lifandi myndum.
Þórey Rósa skoraði tvö mörk
Ísland og Angóla mættust síðast á HM 2011 í Brasilíu. Angóla hafði betur, 28:24. Þórey Rósa Stefánsdóttir, sem er sú eina úr núverandi landsliðshópi sem tók þátt í leiknum 2011, skoraði tvö mörk. Stella Sigurðardóttir var markahæst með sjö mörk og Dagný Skúladóttir var næst með fimm mörk.
Styttist í HM
Leikirnir á mótinu í Hamar og Lillehammer eru liður í undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir þátttöku á heimsmeistaramótinu sem hefst á miðvikudaginn. Fyrsti leikur íslenska landsliðsins verður daginn eftir gegn Slóvenum í Stavangri. Það verður fyrsti leikur kvennalandsliðsins á HM í 12 ár. Vegna leiksins við Angóla í dag er rétt að taka fram að lið þjóðanna mætast í riðlakeppni HM mánudaginn 4. desember.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá leiknum við norska landsliðið í gær úr safni HSÍ sem handbolti.is fékk góðfúslegt leyfi til þess að birta.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7388-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7398-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7405-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7411-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7427-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7458-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7453-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7449-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7441-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7437-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7473-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7474-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7476-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7483-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7484-1024x683.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/11/IMG_7485-1024x683.jpg)