Veselin Vujovic hefur á ný tekið við þjálfun karlalandsliðs Katar í handknattleik. Hann var þjálfari liðsins 2024 og 2025 en var leystur frá störfum í kjölfar ófullnægjandi árangurs að mati stjórnenda handknattleiksíþróttarinnar í Katar. Kallað var á ný á Spánverjann Valero Rivera sem var landsliðsþjálfari ára velmegunarára landsliðs Katar. Þegar Katar tókst ekki að vinna forkeppni heimsmeistaramótsins í upphafi þessa árs voru starfsdagar Rivera í Katar taldir. Var þar með hóað í Vujovic á nýja leik. Hann hefur skrifað undir samning um þjálfun landsliðsins sem gildir fram yfir HM í Þýskalandi í upphafi næsta árs.
Vujovic var þjálfari landsliðs Katar á HM 2024. Landsliðið hafnaði í 21. sæti sem ekki þótti viðunandi.
Vujovic hefur víða komið við á þjálfaraferli sínum en hefur hvergi fest rætur, hvorki hjá félagsliðum né landsliðum, en virðist alltaf fá nýtt gigg. Skapið hefur oftar en ekki hlaupið með Vujovoc í gönur sem hefur m.a. leitt til leikbanna og sekta.
Á níunda áratug síðustu aldar var Vujovic talinn fremsti handknattleiksmaður heims, eða alltént í hópi þeirra allra fremstu. Hann var burðarás frábærs landsliðs Júgóslavíu og félagsliðsins RK Metaloplastika Šabac sem átti fáa sín líka um árabil. Síðar lék Vujovoc m.a. með Barcelona.


