- Auglýsing -
- Auglýsing -

Markadrottning Olísdeildar: Geggjað að hafa náð þessu markmiði

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, HK, varð markahæst hjá HK gegn Gróttu. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

„Ég setti mér það markmið fyrir tímabilið að verða markahæst. Það er geggjað að hafa náð því þótt markmið okkar í HK-liðinu hafi því miður ekki gengið eftir,“ segir Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, markadrottning Olísdeildar kvenna leiktíðina 2021/2022. Jóhanna Margrét skoraði 127 mörk í 21 leik, sjö mörkum meira en Sylvía Björt Blöndal hjá Aftureldingu. Listi yfir markahæstu leikmenn er birtur neðst í þessari frétt.

„Ég er mjög ánægð að hafa náð að koma sterk til baka eftir að hafa verið frá keppni nærri því allt tímabilið í fyrra vegna krossbandaslits,“ segir Jóhanna Margrét ennfremur. Hún stendur á tvítugu.

Eftir að hafa mætt aftur út á völlinn fyrir um ári eftir krossbandaslitið hefur Jóhanna Margrét haft nóg að gera við að halda áfram að styrkja sig auk þess sem hún stóð í ströngu í fyrrasumar með U19 ára landsliðinu í B-hluta Evrópumótsins. Eftir það tók við undirbúningur fyrir Íslandsmótið og loks langt og strangt tímabil með HK í Olísdeildinni og í Coca Cola-bikarnum. Þess utan hefur Jóhanna Margrét verið í A-landsliðshópnum í kringum síðustu leiki.

Stefni á að ná langt

„Ég stefni bara eins langt og hægt er í handboltanum,“ segir Jóhanna Margrét sem samdi á dögunum við sænska úrvalsdeildarliðið Önnereds í Gautaborg. Hún segist viss um að þar með sé hún að stíga hárrétt skref á góðum tíma á sínum ferli.

„Ég er mjög sátt. Aðstaðan mjög góð hjá Önnereds og allir afar vinalegir,“ segir Jóhanna sem á í vændum að taka við stóru hlutverki hjá félaginu. „Ég bý mig undir að fyrstu skrefin geta orðið erfið en ég er bjartsýn á að þegar fram líða stundir og ég kemst betur inn í hlutverkið léttist róðurinn,“ segir Jóhanna Margrét.

Lífið snýst um handbolta

„Lífið heftur lengi snúist mjög mikið um handboltann enda hef ég líka mjög gaman af því. Ég mjög spennt fyrir þessu. Það er gott að vera hjá mömmu og pabba en maður hefur líka gott af því að standa aðeins á eigin fótum og vinna út frá þeirri reynslu,“ segir þessa metnaðarfulla og dugmikla handknatteikskona, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, markahæsti leikmaður Olísdeildar kvenna.

Hér fyrir neðan er listi yfir þær sem skoruðu 60 mörk eða fleiri í Olísdeild kvenna á keppnistímabilinu. Upplýsingarnar eru unnar upp úr gagnagrunni HSÍ.

Nafn:FélagMörkL.fj.
Jóhanna Margrét SigurðardóttirHK12721
Sylvía Björt BlöndalAftureldingu12021
Thea Imani SturludóttirVal11220
Sara OddenHaukum10819
Eva Björk DavíðsdóttirStjörnunni10720
Hapa Valey GylfadóttirÍBV10721
Ásta Björt JúlíusdóttirHaukum10320
Rakel Sara ElvarsdóttirKA/Þór10021
Sunna JónsdóttirÍBV9921
Rut Arnfjörð JónsdóttirKA/Þór9818
Katrín Helga DavíðsdóttirAftureldingu9621
Martha HermannsdóttirKA/Þór9620
Aldís Ásta HeimisdóttirKA/Þór9421
Helena Rut ÖrvarsdóttirStjörnunni9421
Karen KnútsdóttirFram8820
Marija JovanovicÍBV8620
Þórey Rósa StefánsdóttirFram8520
Mariam EradzeVal8421
Elín Klara ÞorkelsdóttirHaukum8221
Lovísa ThompsonVal8213
Ragnheiður JúlíusdóttirFram8113
Valgerður Ýr ÞorsteinsdóttirHK7821
Emma OlssonFram7220
Elísabet GunnarsdóttirStjörnunni7020
Unnur ÓmarsdóttirKA/Þór7021
Berta Rut HarðardóttirHaukum6820
Lena Margrét ValdimarsdóttirStjörnunni6820
Elna Ólöf GuðjónsdóttirHK6320
Elísa ElíasdóttirÍBV6219
Hildur ÞorgeirsdóttirFram6221
Linda CardellÍBV6221
Birta Lind JóhannsdóttirHaukum6021
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -