- Auglýsing -
- Auglýsing -

Markahæstur annað HM í röð – hverjir hafa skorað mest frá 1958?

Bjarki Már Elísson leikmaður íslenska landsliðsins og ungverska liðsins Telekom Veszprém. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Bjarki Már Elísson varð markahæstur Íslendinga á HM annað mótið í röð. Að þessu sinni skoraði hann 45 mörk í sex leikjum og eins kom fram á handbolta.is í fyrradag.


Guðjón Valur Sigurðsson hefur oftast verið markahæstur íslensku landsliðsmannanna á HM, alls fjórum sinnum. Bjarki Már, Ólafur Stefánsson, Valdimar Grímsson, Axel Axelsson og Gunnlaugur Hjálmarsson hafa tvisvar skorað flest mörk fyrir íslenska landsliðið á HM þegar litið er til markakónga Íslands á HM frá 1958.

Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur Íslendinga á HM 2019 með 37 mörk. Hér er eitt marka fimm marka hans gegn Króötum í München 11. janúar í uppsiglingu. Mynd/EPA

Arnór Þór Gunnarsson varð markahæstur Íslendinga á HM 2019 þrátt fyrir að hafa leikið tveimur leikjum færra en flestir aðrir í liðinu.


Aðeins einu sinni hefur Íslendingur skorað flest mörk allra á HM en því afreki náði Guðjón Valur Sigurðsson á HM 2007 í Þýskalandi.


Hér fyrir neðan er markahæstu leikmenn Íslands á HM frá 1958 til 2023.

HMnafnmörkfj.leikja
2023:Bjarki Már Elísson456
2021:Bjarki Már Elísson396
2019:Arnór Þór Gunnarsson376
2017:Rúnar Kárason296
2015:Guðjón Valur Sigurðsson316
2013:Guðjón Valur Sigurðsson416
2011:Alexander Petersson539
2007:Guðjón Valur Sigurðsson6610
2005:Guðjón Valur Sigurðsson315
2003:Ólafur Stefánsson589
2001:Ólafur Stefánsson326
1997:Valdimar Grímsson529
1995:Valdimar Grímsson346
1993:Sigurður V. Sveinsson377
1990:Alfreð Gíslason327
1986:Kristján Arason426
1978:Axel Axelsson143
1974:Axel Axelsson183
1970:Geir Hallsteinsson196
1964:Gunnlaugur Hjálmarsson113
1961:Gunnlaugur Hjálmarsson226
1958:Birgir Björnsson133
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -