Matthildur Lóa Baldursdóttir hefur samið við Handknattleiksdeild Aftureldingar um að leika með liðinu næstu tvö árin. Matthildur er 19 ára gömul og kemur í Mosfellsbæinn frá grannliðinu Fjölni í Grafarvogi. Hún leikur í stöðu skyttu í sókn auk þess að vera prýðilegur varnarmaður.
„Við erum stolt af því að Matthildur hafi ákveðið að semja við Aftureldingu og ætli að taka þátt í þeirri vegferð og uppbyggingu sem er fram undan,“ segir m.a. í tilkynningu Aftureldingar.
Matthildur Lóa er fimmti leikmaðurinn sem komið hefur til liðs við Aftureldingu á síðustu vikum. Hinar eru Rakel Dórothea Ágústsdóttir frá Stjörnunni, Vera Pálsdóttir frá Fjölni, Mattý Rós Birgisdóttir frá Víkingi og Andrea Ósk Þorkelsdóttir, einnig frá Víkingi.
Þar á ofan var Sebastian Alexandersson ráðinn þjálfari kvennaliðs Aftureldingar á dögunum.



