Meistarar SC Magdeburg létu Hauk Þrastarson og liðsfélaga í Rhein-Neckar Löwen ekki stöðva sig á sigurgöngu í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon voru atkvæðamiklir í þriggja marka sigri SC Magdeburg í Mannheim, 33:30. Magdeburg-liðið tryggði sér þýska meistaratitilinn á fimmtudagskvöld á heimavelli.
Haukur skoraði sex af mörkum Rhein-Neckar Löwen og gaf einnig þrjár stoðsendingar í baráttunni við liðsfélaga sína úr landsliðinu og tvo fyrrverandi sveitunga frá Selfossi, Ómar Inga og Elvar Örn.
Gísli Þorgeir skoraði tvö mörk fyrir SC Magdeburg og gaf eina stoðsendingu. Elvar Örn og Ómar Ingi skoruðu eitt mark hvor. Ómar gaf tvær stoðsendingar en Elvar eina.
Staðan í þýsku 1. deildinni:



