Meira los hefur verið á starfsmannamálum félaga í þýskum handknattleik á leiktíðinni sem nú stendur yfir en á undangengnum árum. Samkvæmt Sport Bild hafa 15 mannabreytingar orðið á tímabilinu 2025/26 í stöðum aðalþjálfara, framkvæmdastjóra, íþróttastjóra og yfirmanna íþróttamála í tveimur efstu þýsku deildunum.
Hæst ber vafalaust að meistaralið síðasta árs, Füchse Berlin, sagði upp þjálfaranum Jaron Siewert og Stefan Kretzschmar íþróttastjóra rétt eftir að keppnistímabilið hófst í haust.
Í efstu deild hafa félög eins og Füchse Berlin, Leipzig, Wetzlar og Hannover-Burgdorf skipt um aðalþjálfara, en einnig hafa orðið breytingar utan vallar hjá meðal annars Kiel, Hamburg, Melsungen, Leipzig, Rhein-Neckar Löwen og Eisenach. Tvö liðanna, Leipzig og Wetzlar sögðu upp þjálfurum sem ráðnir voru síðasta sumar áður en leiktíðin var hálfnuð.
Sport Bild dregur þá ályktun að þolinmæðin hafi minnkað í þýskum handbolta og að þessa þróun sé varla hægt að kalla heilbrigða. Kröfurnar aukast jafnt og þétt um leið og félögin spenna fjárhagsbogann til ítrasta.


