- Auglýsing -
- Mikkel Hansen skoraði sitt 1.100 mark fyrir danska landsliðið í gær þegar hann skoraði fyrsta mark sitt af 11 í fjögurra marka tapi Dana fyrir Norður-Makedóníu í undankeppni EM. Hansen á enn nokkuð í land að ná markahæsta landsliðsmanni Dana frá upphafi, Lars Christiansen. Hann skoraði 1.503 mörk fyrir danska landsliðið í 338 landsleikjum frá 1992 til 2012. Hansen hefur betra meðaltal í leik því hann á að baki 220 landsleiki frá árinu 2007.
- Norski handknattleiksmaðurinn Bjarte Myrhol segir afar sennilegt að hann kveðji norska landsliðið eftir Ólympíuleikana í sumar, ef norska landsliðið nær að vinna sér inn þátttökurétt á leikunum. Myrhol, sem er 39 ára gamall, segir að það verði ágætur tímapunktur að kveðja landsliðið eftir að hafa tekið þátt á Ólympíuleikum.
- Daninn Lasse Møller hefur bæst á langan lista þýska handknattleiksliðsins Flensburg yfir meidda leikmenn. Møller dró sig í gær út úr danska landsliðinu og hélt heim til Þýskalands.
- Jonathan Edvardsson gengur til liðs við Hannover-Burgdorf í sumar. Edvardsson, sem leikur nú með Sävehof er stoðsendingakóngur sænsku úrvalsdeildarinnar á þessu keppnistímabili.
- Auglýsing -