- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Aníta Eik, tvær í U17 í Noregi, Janc, Persson, Ravensbergen 

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Aníta Eik Jónsdóttir fyrirliði hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HK. Aníta Eik er í fjölmennum hópi efnilegra handknattleikskvenna hjá HK og hefur m.a. átt sæti í yngri landsliðum Íslands. 
  • Tvær stúlkur sem eru af íslensku bergi brotnar eru í U17 ára landsliði Noregs í handknattleik kvenna sem valið var á dögunum til þátttöku á æfingamóti í Rúmeníu í byrjun mars. Annars vegar er það Mali Halldórsson leikmaður Kongsvinger IL og Ella Bríet Gunnarsdóttir hjá Stavanger IF. Ella Bríet var í æfingahóp U16 ára landsliðs Íslands fyrir ári. 
  • Slóvenski hornamaðurinn Blanz Janc hefur skrifað undir nýjan samning við Evrópumeistara Barcelona. Nýi samningurinn gildir til ársins 2028. Janc kom til Barcelona 2020 frá Kielce í Póllandi. Sigvaldi Björn Guðjónsson tók þá sæti Janc hjá pólska meistaraliðinu. 
  • Sænski landsliðsmaðurinn Linus Persson gengur til við danska meistaraliðið GOG í sumar. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Hinn 29 ára gamli Svíi er nú í herbúðum Nantes í Frakklandi
  • Hollenski landsliðsmarkvörðurinn Bart Ravensbergen  gengur til liðs við Göppingen í þýsku 1. deildinni í sumar. Hann er nú liðsmaður Nordhorn í 2. deild. Ravensbergen er með betri markvörðum 2. deildar. Hann var mjög öflugur með hollenska landsliðinu á HM í síðasta mánuði og eins á EM í upphafi árs 2022. Daniel Rebmann, sem nú er markvörður Göppingen verður liðsmaður Gummersbach í sumar. 
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -