- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði tvö mörk þegar Skövde vann IFK Tumba, 35:29, í lokaleik liðanna í 4. riðli 32 liða úrslita sænsku bikarkeppninnar í handknattleik í gær. Skövde er komið í 16 liða úrslit keppninnar. Leikmenn Tumba sitja eftir en þeir töpuðu öllum þremur viðureignum sínum í keppninni.
- Harpa Rut Jónsdóttir og samherjar í svissneska meistaraliðinu LK Zug töpuðu í gær fyrir LC Brühl með sex marka mun, 30:24, í meistarakeppninni í Sviss. LK Zug er ríkjandi meistari og bikarmeistari í Sviss. Harpa Rut skoraði ekki mark í leiknum. Pfadi Winerthur vann meistarakeppnina í karlaflokki. Liðið vann Suhr Aarau, 26:19. Winerthur átti að leika gegn Kadetten, liðinu sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar þar sem Kadetten er bikarmeistari. Vegna Evrópuleiks hjá Kadetten í dag varð liðið að afþakka þátttöku í meistarakeppninni að þessu sinni.
- Grótta vann Hörð í æfingaleik í handknattleik karla á Blönduósi á föstudagskvöldið, 36:29. Arnar Daði Arnarsson og hans menn í Gróttu eru í æfingabúðum á Blönduósi yfir helgina. Axel Sveinsson, aðstoðarþjálfari Harðar, sneri til baka út á völlinni eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Grótta lék einnig æfingaleik við KA á Blönduósi í gær en ekki hafa borist tíðindi af úrslitum leiksins.