- Auglýsing -
- Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar hans í Skanderborg AGF töpuðu fyrir Mors-Thy í fjórðu umferð af sex í riðlakeppninni um meistaratitilinn í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Leikið var á heimavelli Mors-Thy sem vann með sex marka mun, 35: 29. Donni skoraði fimm mörk.
- Mors-Thy náði þar með efsta sæti annars riðils úrslitakeppninnar af Skanderborg. Tvö efstu lið riðilsins komast í undanúrslit. Tvær umferðir eru eftir af riðlakeppninni.
- Arnór Atlason og liðsmenn hans í TTH Holstebro töpuðu fyrir Bjerringbro/Silkeborg, 33: 32, í gær. Liðin tvö eru með Mors-Thy og Skanderborg í riðli í úrslitakeppninni. Jóhannes Berg Andrason skoraði eitt mark fyrir TTH Holstebro og var einu sinni vikið af leikvelli.
- Bjarki Már Elísson skoraði ekki mark þegar One Veszprém vann Csurgói KK, 41:30, á heimavelli í 23. umferð ungversku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. One Veszprém hefur unnið alla leiki sína til þessa og á meistaratitilinn vísan.
- Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði níu mörk og var næstmarkahæstur hjá IFK Kristianstad þegar liðið tapaði óvænt á heimavelli fyrir Alingsås, 43:38, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast áfram í úrslit. Næsti leikur liðanna verður í Alingsås á miðvikudaginn.
- Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði tvö mörk í þriggja marka tapi RK Alkaloid fyrir Vardar í viðureign Skopje-liðanna í úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar í Norður-Makedóníu í gær, 30:27. Vardar er í sérflokki í deildinni og virðist eiga meistaratitilinn innan seilingar. RK Alkaloid virðist fast í fjórða sæti úrslitakeppninnar sem leikin er í einum sex liða riðli.
- Auglýsing -


