- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Einar 1000, Orri Freyr, Ýmir Örn, Arnór Þór, Heiðmar, Stuttgart reis úr öskustónni

Einar Sverrisson hefur verið óspar á þrumuskotin. Mynd/Selfoss/SÁ
- Auglýsing -
  • Einar Sverrisson skoraði sitt 1000. mark fyrir meistaraflokk Selfoss í gærkvöldi. Áfanganum náði Einar á  25. mínútu leiks Selfoss og ÍBV í Sethöllinni á Selfossi í 4. umferð Olísdeildarinnar. Alls skoraði Einar 10 mörk í leiknum sem var hans 228. fyrir meistaraflokk félagsins. Suðurlandsslagnum lauk með stórmeistarajafntefli, 31:31.  Frá þessu var greint á Twittersíðu handknattleiksdeildar Selfoss. Til mikils sóma er þegar félög halda vel utan um tölfræði síns íþróttafólks.
  • Orri Freyr Þorkelsson skoraði fjögur mörk fyrir Elverum í gær þegar liðið tapaði fyrir Nantes í þriðju umferð B-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknatteik í gærkvöld. Leikurinn fór fram í Nantes. Um var að ræða annan sigur Nantes í riðlinum. Elverum rekur lestina ásamt Pick Szeged án stiga.  Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður, var ekki í leikmannahópi Nantes í leiknum. Eins og kom fram á handbolta.is á mánudaginn meiddist Viktor Gísli á olnboga fyrir um 10 dögum og verður af þeim sökum frá keppni um skeið. 

  • Barcelona er efst í B-riðli Meistaradeildar karla með sex stig eftir þrjá leiki og er eina taplausa liðið í riðlinum. Barcelona vann Celje, 38:30, á heimavelli í gær. Kiel vann ungversku meistarana, Pick Szeged, 34:29, og er með fjögur stig eins og Aalborg, Nantes og Kielce. Í A-riðli batt Wisla Plock enda á sigurgöngu GOG með fjögurra marka sigri í Póllandi, 31:27. Plock er með fjögur stig en GOG þrjú. Veszprém er efst í A-riðli með sex stig.
  • Sigurganga Ýmis Arnar Gíslasonar og samherja í Rhein-Neckar Löwen heldur áfram. Niclas Kirkeløkke tryggði liðinu sigur á Bergischer, 27:26, á útivelli í gær. Daninn skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndum leiksins. Rhein-Neckar Löwen hefur þar með 12 stig að loknum sex leikjum í efsta sæti þýsku 1. deildarinnar. Hvorki Ýmir Örn né Arnór Þór Gunnarsson leikmaður Bergischer skoruðu í leiknum. Ými Erni var tvisvar vísað af leikvelli.  Þetta var í fyrsta sinn sem Sebastian Hinze mætir sínum gömlu lærisveinum eftir að hann hætti þjálfun Bergischer í sumar og tók við þjálfun Rhein-Neckar Löwen. 

  • Hannover-Burgdorf vann GWD Minden, 35:34, á útivelli í þýsku 1. deildinni í gærkvöld. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf sem er í 7. sæti með átta stig eftir sex leiki.  
  • Leikmenn Stuttgart risu úr öskustónni í gærkvöld og unnu sinn fyrsta leik í þýsku 1. deildinni er þeir tóku á móti Lemgo, 32:28. Þjálfara Stuttgart, Roi Sánchez, var sagt upp störfum um síðustu helgi eftir að liðið hafði tapað fimm fyrstu leikjum sínum. 
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -