- Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk í gærkvöld þegar Barcelona vann Zagreb á útivelli í 11. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í handknattleik, 37:33. Barcelona hefur yfirburðastöðu í B-riðli keppninnar með 22 stig eftir 11 leiki.
- Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrisvar sinnum fyrir Vive Kielce er liðið tapaði fyrir Meshkov Brest, 35:30, í A-riðli Meistaradeildarinnar en leikið var í Brest í Hvíta-Rússlandi. Kielce er áfram efst í A-riðli ásamt Flensburg með 15 stig en Brest er í þriðja sæti með 11 stig.
- Hildigunnur Einarsdóttir skoraði eitt mark þegar lið hennar Bayer Leverkusen tapaði fyrir Dortmund, 31:29, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í fyrrakvöld. Dortmund, sem var marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:16, er í efsta sæti deildarinnar með 32 stig að loknum 16 leikjum. Leverkusen situr í níunda sæti af 16 liðum með 16 stig að loknum 16 leikjum.
- Daníel Freyr Andrésson varði 14 skot og var með 32,6% hlutfallsmarkvörslu þegar lið hans, Guif, vann Lugi, 33:29, á heimavelli í fyrrakvöld í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Guif er komið upp í níunda sæti deildinnar.
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson var ekki í liði Skövde sem vann Redbergslid, 32:31, á heimavelli. Skövde situr í fimmta sæti og er átta stigum á eftir Malmö sem er í efsta sæti.
- Roland Eradze og félagar hans í Motor Zaprorzhye unnu CSKA Kiev, 42:9, í efstu deild úkraínska handknattleiksins í fyrrakvöld. Staðan í hálfleik var 20:3. Motor Zaprorzhye er efst í deildinni með 25 stig að loknum 13 leikjum.