- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Jóhanna Margrét, Teitur Örn, Haukur, Valur, Fram Afturelding

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir leikur með Önnereds í Svíþjóð. Mynd/Önnereds
- Auglýsing -
  • Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði tvö mörk í gær þegar Önnereds vann Kristianstad HK, 35:19, í annarri umferð áttunda riðils sænsku bikarkeppninnar í handknattleik. Önnereds hefur unnið  tvo fyrstu leiki sína og á sæti í 16-liða úrslitum víst eftir sigurinn í gær. 

  • Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk þegar lið hans Flensburg tapaði með fjögurra marka mun fyrir ungverska liðinu Veszprém, 35:31, á æfingamóti í Ungverjalandi í gær. Bjarki Már Elísson virðist ekki hafa skorað fyrir Veszprém. 
  • Á sama móti þá tapaði pólska meistaraliðið Kielce fyrir þýsku bikarmeisturunum í Kiel með tveggja marka mun, 35:33. Haukur Þrastarson lék með Kielce. 
  • Bikarmeistarar Vals í handknattleik kvenna töpuðu í gær með eins marks mun fyrir spænska liðinu Elda Prestigio, 24:23, í hörkuleik á æfingamóti í Albír á Spáni. Valsliðið mætir liði Benidorm í dag. 

  • Karlalið Fram tapaði með fimm marka mun fyrir liði Benidorm í gær, 27:22, á móti í Albír þar sem Framarar eru við æfingar. Afturelding tapaði fyrir Benidorm-liðinu í fyrrakvöld, 31:16. Liðin þrjú eru við æfingar og keppni í Albír í viku.


- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -