- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Ólafur, Óskar hættir, Viktor, Helga, Bjarki, Arnar

Ólafur Andrés Guðmundsson. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Ólafur Andrés Guðmundsson handknattleiksmaður GC Amicitia Zürich er sagður flytja til Svíþjóðar í sumar og ganga til liðs við Karlskrona sem leikur í næst efstu deild. Aft­on­bla­det sagði frá þessu samkvæmt heimildum í gær og að hvort sem Karlskrona verður í efstu deild eða næst efstu deild leiki Ólafur með liðinu.
  • Ólafur, sem meiddist á HM í janúar og hefur verið frá keppni síðan, skrifaði undir þriggja ára samning við GC Amicitia Zürich á síðasta sumri. Þar áður var hann í eitt ár hjá Montpellier. Hermt er að Ólafi og fjölskyldu líki vel lífið í Svíþjóð og vilji komast þangað á nýjan leik. Ólafur lék í átta ár með Kristianstad sem er ekki fjarri Karlskrona. 
  • Handknattleiksmaðurinn Óskar Ólafsson sem leikið hefur með Drammen í Noregi frá árinu 2016 hefur ákveðið að hætta handknattleik í vor. Óskar hefur verið einn öflugasti leikmaður Drammen síðustu árin. Hann var valinn í íslenska landsliðið haustið 2020 en lék aldrei með liðinu. Eins hefur Óskar verið í stærri hópum sem valdir hafa verið fyrir stórmót, m.a. fyrir HM í janúar. 
  • Hinn hálf íslenski Viktor Petersen Norberg sem einnig leikur með Drammen framlengdi nýverið dvölina hjá félaginu til tveggja ára. 
  • Helga Lúðvíka Hallgrímsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Víking og verður því áfram í herbúðum félagsins á næstu leiktíð. Helga, sem er uppalin innan raða Víkings og er skytta en hefur ekkert spilað á þessu tímabili eftir að hafa slitið krossband í lok síðustu leiktíðar.
  • Bjarki Már Elísson lék í gærkvöld sinn 100. A-landsleik  og Arnar Freyr Arnarsson sinn 80. landsleik þegar íslenska landsliðið steinlá fyrir Tékkum, 22:17, í Brno í Tékklandi í undankeppni EM í handknattleik. 
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -