- Auglýsing -
- Örn Vésteinsson Östenberg skoraði eitt mark og átti þrjár stoðsendingar þegar lið hans TuS N-Lübbecke vann Potsdam, 33:26, á heimavelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik í gærkvöld. Örn gekk til liðs við N-Lübbecke skömmu fyrir jólin. Liðið er í öðru sæti með 27 stig eftir 19 leiki, er fjórum stigum á eftir Balingen sem trónir á toppnum og á auk þess leik til góða sem fram fer í kvöld.
- Sveinn Andri Sveinsson skoraði eitt mark og átti eina stoðsendingu fyrir Empor Rostock í tveggja marka tapi á heimavelli fyrir Bayer Dormagen í þýsku 2. deildinni í gærkvöld. Rostock er næst neðst í deildinni með átta stig eftir 18 leiki.
- HC Motor tapaði með eins marks mun fyrir Hüttenberg, 28:27, einnig í þýsku 2. deildinni í gærkvöld. Roland Eradze er aðstoðarþjálfari HC Motor sem er í 17. sæti af 20 liðum með 11 stig.
- Alpla Hard, liðið sem Hannes Jón Jónsson þjálfar, tapaði með eins marks mun fyrir West Wien, 32:31, í Vínarborg í gærkvöld í austurrísku 1. deildinni í handknattleik. Hannes Jón þjálfaði West Wien um árabil. Alpla Hard er í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig eftir 15 leiki, fjórum stigum á eftir West Wien sem er í öðru sæti. Krems er efst með 26 stig en á leik inni á West Wien og Alpla Hard.
- Elvar Ásgeirsson náði ekki að skora fyrir Ribe-Esbjerg í gærkvöld þegar liðið tapaði með fimm marka mun á heimavelli fyrir Skjern í fyrsta leik dönsku úrvalsdeildarinnar á árinu, 30:25. Elvar átti eina stoðsendingu. Arnar Birkir Hálfdánsson kom lítið við sögu hjá Ribe-Esbjerg. Ágúst Elí Björgvinsson stóð hluta leiksins í marki liðsins og varði 5 skot, þar af eitt vítakast, 22%. Ribe-Esbjerg er í 7. sæti með 18 stig eftir 19 leiki.
- Raúl Gonzalez hefur framlengt samning sinn um þjálfun franska meistaraliðsins PSG til ársins 2025. Uppi hefur verið orðrómur síðustu vikur að forráðamenn PSG væru að leita að þjálfara í stað Spánverjans.
- Auglýsing -