- Eins og íslenska landsliðið þá hafa dómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson lokið þátttöku á Evrópumóti 18 ára landsliða í handknattleik karla í Podgorica í Svartfjallalandi. Þeir dæma ekkert á lokadegi mótsins í dag þegar fjórir leikir fara fram, þar sem keppt verður um átta efstu sætin.
- Sigurður og Svavar dæmdu sex leiki á mótinu, þar á meðal undanúrslitaleik Ungverjalands og Svíþjóðar í fyrradag og viðureign Serba og Frakka um 13. sætið í gær þar sem skorið var úr um hvort liðið tryggði sér þátttökurétt á EM 20 ára landsliða eftir tvö ár. Serbar unnu, 28:24, og hrepptu hnossið en Frakkar sátu eftir með sárt ennið.
- Meðal leikja á EM 18 ára landsliða karla í dag er úrslitaleikurinn. Í honum mætast Spánverjar og Svíar. Spánverjar freista þess að vinna titilinn og fylgja þar með eftir sigri 20 ára landsliðsins á Evrópumótinu í Porto fyrir um mánuði. Ungverjar og Þjóðverjar, sem voru með íslenska landsliðinu í riðli á fyrsta stigi mótsins kljást um bronsverðlaunin. Þjóðverjar unnu EM 19 ára landsliða fyrir ári þegar aukamót var sett upp í Króatíu.
- Áfram var leikið á Sparkassen-æfingamótiðnu í Þýskalandi í gær. Gummersbach vann m.a. Ludwigshafen, 44:26. Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson skoraði fjögur af mörkum Gummersbach að þessu sinni. Hannover–Burgdorf og Melsungen leika til úrslita á mótinu í dag.
- Arnar Freyr Arnarsson landsliðsmaður skoraði í tvígang þegar Melsungen vann Lemgo örugglega, 36:27.
- Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk en Ómar Ingi Magnússon ekkert þegar þýsku meistararnir, SC Magdeburg, unnu norska liðið ØIF Arendal, 40:23, á æfingamóti í Noregi í gær. Arendal lék til úrslita um norska meistaratitilinn í vor. Aalborg og SC Magdeburg leika til úrslita á æfingamótinu í dag en bæði lið skarta íslensku landsliðsmönnum.
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði fjórum sinnum fyrir Bergischer þegar liðið vann HSG Konstanz í mikilli markaveislu, 44:30, þegar liðið mættust í æfingaleik í fyrradag. Arnór Þór er að hefja sitt síðasta tímabil sem leikmaður Bergischer sem hann hefur leikið með frá árinu 2012.
- Auglýsing -