- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Sigvaldi fór á kostum, Aron varði tvö vítaköst, Pekeler, Granlund og Waade

Sigvaldi Björn Guðjónsson þekkir vel til í norskum handknattleik. Mynd /EPA
- Auglýsing -
  • Sigvaldi Björn Guðjónsson fór á kostum þegar Vive Kielce vann Stal Mielec, 38:28, í pólsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Sigvaldi skoraði níu mörk og var markahæsti leikmaður vallarins. Hann þurfti 12 skot til þess að skora mörkin níu. Þetta var 12. sigur Vive Kielce í deildinni á leiktíðinni og hefur liðið yfirburðastöðu í efsta sæti eins og fyrri daginn. 
  • Aron Rafn Eðvarðsson varði níu skot, þar af tvö vítaköst, þegar lið hans Bietigheim vann Eisenach, 34:29, í þýsku 2. deildinni í gær. Bietigheim heldur áfram að mjaka sér upp stöðutöfluna og er nú komið í 6. sæti með 16 stig eftir 14 leiki og er 12 stigum á eftir HSV Hamburg sem er í efsta sæti. 
  • Evrópumeistarar THW Kiel hafa samið við þýska línumanninn Hendrik Pekeler til ársins 2025. Pekeler er 29 ára gamall og kom til Kiel fyrir þremur árum frá Rhein-Neckar Löwen. 
  • Norski landsliðsmarkvörðurinn Rikke Granlund yfirgefur danska mesitaraliðið Team Esbjerg í sumar og gengur til liðs við Chambery Touraine. Granlund er á sínu þriðja keppnistímabili með Esbjerg. 
  • Silje Waade leikur ekki meira með norska meistaraliðinu Vipers. Hún sleit krossband í viðureign Vipers og Metz í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöld. 
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -