- Auglýsing -
Henrik Møllgaard, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsfyrirliði, verður aðstoðarþjálfari stórmeistaralandsliðs Danmerkur í handknattleik karla. Frá þessu segir á vef TV2 í Danmörku. Møllgaard er 41 árs gamall og er sem stendur aðstoðarþjálfari franska meistaraliðsins PSG.
Møllgaard lék sinn síðasta landsleik í mars fyrir rúmu ári en alls klæddist hann 230 sinnum danska landsliðsbúningnum, varð fjórfaldur heimsmeistari í búningnum og tvisvar sinnum Ólympíumeistari.
Henrik Kronborg, sem hafði verið aðstoðarþjálfari landsliðsins undir stjórn þriggja landsliðsþjálfara og tekið þátt í 14 stórmótum, sagði starfi sínu lausu í mars til að einbeita sér eingöngu að starfi hjá Aalborg Håndbold.
- Auglýsing -


