Íslenska landsliðið er komið í milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik eftir sigur á Ungverjum, 31:30, í MVM Dome í kvöld. Þar með hafnar liðið í efsta sæti B-riðils Evrópumeistaraótsins.
Fjórir leikir eru þar með framundan á næstu rúmu viku. Veislan er því rétt að byrja.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari fangað leikinn og stemninguna, baráttuna og gleðina innan vallar sem utan á leiknum í kvöld. Hér fyrir neðan er hluti myndanna.
Um leið er minnt á fyrri syrpur Hafliða frá EM2022: Ferðasagan, æfing í keppnishöllinni, upphitun stuðningsmanna, Ísland – Portúgal 28:24, Stórkostlegir, Ísland – Holland 29:28, Stuðningurinn, Létt á æfingu.
- Auglýsing -