Sunna Guðrún Pétursdóttir, markvörður er komin heim eftir ársdvöl í Zürich. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -
KA/Þór hleypti aukinni spennu í undanúrslitaeinvígið við Val í Olísdeild kvenna í gærkvöld með þriggja marka sigri á heimavelli, 26:23, í annarri viðureign liðanna í KA-heimilinu.
Hvort lið hefur þar með einn vinning. Þau mætast á ný í Origohöll Valsara á fimmtudaginn klukkan 18. Liðið sem fyrr vinnur þrjá leiki leikur til úrslita við Fram eða ÍBV sem eigast við í hinni rimmu undanúrslita Olísdeildar kvenna.
Egill Bjarni Friðjónson lét sig ekki vanta í KA-heimilið í gær. Hann sendi handbolta.is nokkrar af þeim myndum sem hann tók og birtast þær hér fyrir neðan.