Forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, og Geir Hallsteinsson. Mynd/J.L.Long
- Auglýsing -
Geir Hallsteinsson fyrrverandi landsliðsmaður og einn allra fremsti og snjallasti handknattleiksmaður Íslands var heiðraður áður en viðureign FH og Aftureldingar hófst í Kaplakrika í gærkvöld.
Athöfnin var fjölmenn og glæsileg en meðal gesta var forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson. Geir voru afhentar gjafir frá Hafnarfjarðarbæ, aðalstjórn og handknattleiksdeild FH. Frá árinu 1990 hefur Geir verið starfsmaður íþróttahússins í Kaplakrika. Hann lætur af störfum um áramótin.
Geir, sem fæddist 1946, er Hafnfirðingur í húð og hár og lék nánast allan sinn feril með FH auk þess að verða sá fyrsti til þess að leika með liði í efstu deild í Þýskalandi en Geir gekk til liðs við Göppingen 1973.
Geir varð margfaldur Íslands- og bikarmeistari í handknattleik innanhúss og utan, bæði sem leikmaður og síðari þjálfari. Nafn Geirs og fjölskyldu hans er samofið iðkun og sögu handknattleiks á Íslandi frá því íþróttin barst til landsins og fram til dagsins í dag.
Myndskeið sem tekið var saman þegar Geir var tekinn inn í Heiðurshöll ÍSÍ:
Geir var um árabil burðarás í íslenska landsliðinu og lék alls 118 landsleiki og skoraði í þeim 531 mark. Hann var kjörinn Íþróttamaður ársins 1968 af Samtökum íþróttafréttamanna, fyrstur karlkyns handknattleiksmanna. Árið 2016 var Geir tekinn í Heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.
Geir lék íslenska landsliðinu á HM 1970, 1974 og 1978 og í B-heimsmeistaramótinu 1977 og var einnig með þegar íslenska landsliðið tók í fyrsta sinn þátt í Ólympíuleikum árið 1972. Geir var þá fánaberi íslenska keppnishópsins við setningaathöfn leika á Ólympíuleikvanginum í München 1972.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá Jóa Long frá skemmtilegri og góðri kvöldstund í Kaplakrika til heiðurs Geir sem félag hans stóð að svo mikill sóma var að. Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
Forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, og Geir Hallsteinsson. Mynd/J.L.LongIngvar Viktorsson fyrrverandi formaður FH og bæjarstjóri og stjórnarmaður í HSÍ t.v. ásamt Geir Hallsteinssyni t.h. Mynd/J.L.LongGeir Hallsteinsson flutti stutt ávarp á samkomu í Sjónarhól, félagsheimili FH í Kaplakrika. Mynd/J.L.LongGestir í Sjónarhóli klappa Geir lof í lofa. Mynd/J.L.LongGeir Hallsteinsson t.v. ásamt einum af sínum gömlu lærisveinum Kristjáni Arasyni. Mynd/J.L.LongJóhann Skagfjörð Magnússon, kynnir kvöldsins, t.v. og Geir Hallsteinsson. Mynd/J.L.LongLeikmenn Íslandsmeistaraliðs FH í handknattleik karla stóð heiðursvörð meðan þjálfari þeirra og lærimeistari, Geir Hallsteinsson var heiðraður. Nöfn þeirra allra eru á annarri mynd. Mynd/J.L.LongÁsgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH, Viðar Halldórsson formaður aðalstjórnar FH, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands. Mynd/J.L.LongMeðal gesta voru forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson og Hjálmar Árnason fyrrverandi ráðherra og alþingismaður. Mynd/J.L.LongÍslandsmeistarar FH 1984 í handknattleik karla ásamt þjálfara sínum, Geir Hallfsteinssyni. Aftari f.v. Guðmundur „Dadú“ Magnússon sem var fyrirliði, Atli Hilmarsson, Kristján Arason, Hans Guðmundsson, Geir Hallsteinsson, Guðmundur Óskarsson, Valgarður Valgarðsson, Gunnar Beinteinsson og Sverrir Kristinsson.
Fremri röð f.v.: Magnús Árnason, Sveinn Bragason, Pálmi Jónsson, Finnur Árnason, Þorgils Óttar Mathiesen, Jón Erling Ragnarsson og Guðjón Árnason. Mynd/J.L.LongRósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði afhenti Geir Hallsteinssyni blómvönd. Mynd/J.L.LongForseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, heiðraði Geir og FH-inga með nærveru sinni. Forsetinn flutti stutt ávarp sem lauk með að hann óskaði eftir að hrópað yrði ferfalt húrra fyrir Geir sem og var gert. Mynd/J.L.LongForseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, Geir Hallsteinsson og Guðmundur „Dadú“ Magnússon. Mynd/J.L.LongForseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, og Geir Hallsteinsson. Mynd/J.L.LongMynd/J.L.LongTónlistarmaðurinn Friðrik Dór tók lagið í Kaplakrika. Mynd/J.L.LongMörg þekkt andlit voru á leik FH og Aftureldingar í Olísdeild karla sem hófst í kjölfar þess að búið að var að heiðra Geir Hallsteinsson. FH-ingar fóru á kostum í leikum sem gætti mjög geð yngri sem eldri stuðningsmanna félagsins. Mynd/J.L.LongMjög vel var mætt í Kaplakrika í gærkvöld. Mynd/J.L.Long