- Auglýsing -
Reiknað er með að rúmlega 2.000 íslenskir áhorfendur verði á síðasta leik landsliðsins á HM í handknattleik karla í Scandinavium íþróttahöllinni í Gautaborg í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18. Að þessu sinni verður brasilíska landsliðið andstæðingur íslenska landsliðsins.
Íslensku áhorfendurnir settu flottan svip á leikinn við Svía í Scandinavium á föstudagskvöldið og studdu landsliðið með ráðum og dáð eins og á fyrri leikjum landsliðsins á HM. Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari var á leiknum og fangaði stemninguna á meðal áhorfenda eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan.
- Auglýsing -