- Auglýsing -
Nokkrir tugir Íslendinga komu saman í Prater Beer Garden skammt frá Max Schmeling Halle í Berlín í dag þar sem hitað var upp í glaðasólskini og 25 gráðu hita fyrir leik Íslands og Ungverjalands í átta liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í handknattleik, skipað leikmönnum 21 árs og yngri.
Talið er að hátt í 100 Íslendingar verði á leiknum og fjölgaði þeim í gær og morgun þegar nokkrir komu með næturflugi til þýsku höfuðborgarinnar.
Handbolti.is staldraði í skamma stund meðal Íslendinganna sem voru kátir og glaðir að vanda enda er maður ævinlega manns gaman, ekki síst í góðu veðri.
Viðureign Íslands og Ungverjalands hefst klukkan 13.30 og verður textalýsing á handbolti.is beint af vettvangi.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/07/354036071_277762811462537_8667310595926467909_n.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/07/354083428_109756368839125_4470137746500566112_n.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/07/354074528_821817992845032_9047955711548595850_n.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/07/352813638_1006225153698861_8183966655759620290_n.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/07/353990667_1049352086029174_5913962839447123978_n.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/07/354011484_869967108138070_7772571021094762287_n.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/07/354056007_236545532503945_7553158757954775473_n.jpg)
- Auglýsing -