- Auglýsing -
Íslandsmeistarar KA/Þórs komu með flugi til Akueyrar í kvöld eftir að hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna í fyrsta sinn í sögunni fyrr í dag eftir annan úrslitaleik við Val í Origohöllinni á Hlíðarenda.
Nýbakaðir Íslandsmeistarar fengu vitanlega höfðinglegar móttökur á Akureyrarflugvelli í kvöld. Skapti Hallgrímsson, ritstjóri Akureyri.net og einn velunnara handbolta.is var á Akureyrarflugvelli og sendi handbolta.is myndirnar sem eru hér að neðan.
Kærar þakkir Skapti – til hamingju KA/Þór!
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/06/drottningar_6913-1024x795.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/06/drottningar_6970-1024x924.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/06/drottningar_6953-1-1024x723.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/06/drottningar_6924-1024x617.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/06/drottningar_6878-1024x877.jpg)
- Auglýsing -