- Auglýsing -
Íslandsmeistarar Vals komust í undanúrslit í Coca Cola-bikarnum í handknattleik karla í kvöld með því að leggja FH-inga með tíu marka mun, 34:24, í Origohöllinni á Hlíðarenda. Valsarar voru sjö mörkum yfir, 17:11, í hálfleik.
FH-ingar komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og tókst ítrekað að minnka muninn niður í þrjú mörk, síðasta 24:21, þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka. Úrslitin gefa því e.t.v. ekki alveg rétt af mynd af því hvernig leikurinn var lengi vel en víst að Valsmenn voru með tögl og hagldir lengst af, sérstaklega eftir afar góða byrjun.
Hér eru nokkrar myndir frá leiknum sem handbolta.is fékk sendar frá J.L.Long og er þakkað kærlega fyrir.






