- Auglýsing -
Yfirvegun var yfir þeim leikmönnum sem komu saman í æfingatíma íslenska landsliðsins í MVM Dome í Búdapest um miðjan daginn í dag. Magnús Óli Magnússon og Vignir Stefánsson mættu á sína fyrstu æfingu í salnum eftir að hafa leikið sína fyrstu leiki í lokakeppni EM í salnum í gærkvöld þegar íslenska landsliðið vann sigurinn frækilega á Frökkum, 29:21.
Darri Aronsson og Þráinn Orri Jónsson komu til Búdapest í nótt og tóku þátt ásamt nokkrum úr þeim hópi sem fyrir er í borginni og er ekki í einangrun.
Ýmir Örn Gíslason, Ómar Ingi Magnússon, Viggó Kristjánsson, Sigvaldi Björn Guðjónsson og Elliði Snær Viðarsson urðu eftir á hótelinu eins og Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, og Gunnar Magnússon aðstoðarþjálfari.
Ágúst Þór Jóhannesson, markvarðaþjálfari sá um æfinguna, svona heilt yfir.
Hafliði Breiðfjörð smellti nokkrum myndum af á æfingunni og birtist hluti þeirra hér fyrir neðan.
Viðureign Íslands og Króatíu í 3. umferð milliriðlakeppninnar hefst klukkan 14.30 á morgun, mánudag. Óvíst er að einhverjir þeirra sem eru í einangrun losni úr henni fyrir leikinn.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10128-2-1024x683.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10126-2-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10125-3-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10123-4-Copy-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10119-3-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10117-5-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10113-1-1-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10108-3-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10109-5-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10107-1-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10102-3-1024x683.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10088-4-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10080-3-1-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10004-8-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10005-7-1024x683.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10061-1-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10007-9-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10024-10-1024x682.jpg)
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2022/01/Mynd-10019-8-1024x682.jpg)
- Auglýsing -