Bjarki Már Elísson átti stórleik og var markahæstur leikmanna Veszprém þegar liðið jafnaði metin gegn Pick Szeged í úrslitaeinvíginu um ungverska meistaratitilinn í handknattleik í kvöld. Bjarki Már var markahæsti maður vallarins með níu mörk í sjö marka sigri Veszprém á heimavelli, 34:27, eftir að hafa verið marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 18:17.
Vladimir Cupara markvörður Veszprém átti einnig fyrirtaksleik. Eins lék unga örvhenta skyttan Zoran Ilic vel og skoraði m.a. sjö mörk.
Þar með mætast liðin, sem eru svarnir andstæðingar í ungverskum handknattleik, í hreinum úrslitaleik um meistaratitilinn í Szeged á föstudaginn. Flautað verður til leiks klukkan 18.30 að íslenskum tíma fyrir þá sem hafa tök á að fylgjast með.
Szeged vann á sínum heimavelli með sex marka mun, 31:25, á föstudaginn. Liðið er með heimaleikjaréttinn eftir að hafa orðið deildarmeistari.
Hér fyrir neðan er má sjá helstu atriði leiksins í samantekt.