Færeyingar unnu sögulegan sigur á Úkraínumönnum í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik karla í kvöld, 33:26, í Höllinni á Hálsi í Þórshöfn. Þar með er færeyska landsliðið komið inn í myndina yfir þau lið sem eiga möguleika á að tryggja sér sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins í handknattleik í Þýskalandi á næsta ári.
Færeyingar eru í þriðja sæti í fjórða riðli undankeppninnar en fjögur af átta liðum sem hafna í þriðja sæti fá farseðil á EM að lokinni undankeppninni á sunnudaginn.
Keeping the fairytale alive 🇫🇴🙌@FaroeOlympic | #ehfeuro2024 | #HereToPlay pic.twitter.com/RG7chxc3HY
— EHF EURO (@EHFEURO) April 26, 2023
Elias Ellefsen á Skipagøtu og félagar í færeyska landsliðinu slógu upp veislu fyrir framan 1.800 áhorfendur í Höllinni á Hálsi í kvöld. Þeir léku afar góða vörn með Peter Krogh í aðahlutverki í hjarta varnarinnar og Pauli Jacobsen í miklu stuði í markinu.
🇫🇴 Pauli Jacobsen: 1⃣0⃣ saves in the first half 😳#ehfeuro2024 | #HereToPlay @FaroeOlympic pic.twitter.com/I3DseNSZAh
— EHF EURO (@EHFEURO) April 26, 2023
Óstöðvandi frændur
Í sóknarleiknum fór hinn tvítugi Ellefsen og frændi hans Óli Mittún, 17 ára, hamförum. Úkraínsku varnarmennirnir réðu ekkert við frændurna sem skoruðu 20 mörk, þar af skoraði Ellefsen 13. Til viðbótar var Hákun West av Teigum frábær í hægra horni með 6 mörk í sjö skotum. Hinn tvítugi markvörður H71, Pauli Jacobsen, varði 15 skot, þar af tvö vítaköst, 37,5%.
Ellefsen átti auk þess átta stoðsendingar og Mittún þrjár.
The 𝘚𝘬𝘪𝘱𝘢𝘨𝘰𝘵𝘶 𝘚𝘩𝘰𝘸 already started 🎩 Making the defence (and our cameraman) dizzy 😵💫#ehfeuro2024 | #HereToPlay | @FaroeOlympic pic.twitter.com/PyzZajhBx8
— EHF EURO (@EHFEURO) April 26, 2023
Staðan í hálfleik var 17:12. Úkraínumenn reyndu að saxa á forskotið framan af síðari hálfleik en máttu játa sig sigraða gegn færeysku stórsveitinni sem sló ekki á feilnótu.
Færeyingar sækja Austurríkismenn heim til Bregenz á sunnudaginn. Úkraínumenn fá Rúmena í heimsókn til Gummersbach. Með hagstæðum úrslitum á sunnudaginn gæti svo farið að frændur okkar Færeyingar verði með á EM í Þýskalandi í janúar.
Staðan í riðlinum:
Austurríki | 5 | 5 | 0 | 0 | 170:149 | 10 |
Rúmenía | 5 | 2 | 0 | 3 | 147:142 | 4 |
Færeyjar | 5 | 2 | 0 | 3 | 131:136 | 4 |
Úkraína | 5 | 1 | 0 | 4 | 140:161 | 2 |