- Auglýsing -
Viktor Gísli Hallgrímsson sýndi snilldartilþrif þegar hann sótti verðandi heimavöll sinn í Nantes í Frakklandi heim í vikunni með samherjum sínum í danska liðinu GOG í Evrópudeildinni í handknattleik. Viktor Gísli gengur til liðs við Nantes fyrir næsta keppnistímabil.
Tilþrif íslenska landsliðsmarkvarðarins voru valin ein af fimm bestu markvörslum vikunnar í keppninni af Handknattleikssambandi Evrópu, EHF. Þau dugðu þó ekki til sigurs því Nantes vann með þriggja marka mun, 27:24. Stuðningsmenn Nantes fengu hinsvegar að finna smjörþefinn af því sem koma skal á næsta keppnistímabili.
Varslan hjá Viktori Gísla er önnur í röðinni á myndskeiðinu hér fyrir neðan.
- Auglýsing -