„Við vorum með alltof marga tapaða bolta. Þar liggur væntanlega munurinn. Við vorum alltaf að reyna en hentum bara boltanum frá okkur,” sagði Einar Rafn Eiðsson leikmaður KA í samtali við samfélagsmiðla félagsins eftir sjö marka tap fyrir FH, 34:27, í 11. umferð Olísdeildar karla í KA-heimilinu í kvöld.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildunum.
KA er í sjöunda sæti deildarinnar með 10 stig eftir 11 leikin en liðinu tókst ekki að fylgja eftir góðum sigri á Val í síðustu umferð deildarinnar.
Nánar er rætt við Einar Rafn á myndskeiðinu hér fyrir neðan.
Einar Rafn spjallaði við okkur eftir tap gegn @FH_Handbolti í kvöld @handkastid @handboltiis pic.twitter.com/8rIHigIHp9
— KA (@KAakureyri) November 29, 2023
Myndskeið: Þurftum að ná vopnum okkar aftur í hálfleik
Eyjamenn og FH-ingar með sigra