- Auglýsing -
- Auglýsing -

Næsta víst að Arna Valgerður taki við af Andra Snæ

Arna Valgerður Erlingsdóttir t.v., Rut Arnfjörð Jónsdóttir go Andri Snær Stefánsson bera saman bækur sínar á síðustu leiktíð. Mynd/Skapti Hallgrímsson, Akureyri.net
- Auglýsing -

Nær öruggt er að Arna Valgerður Erlingsdóttir verði á næstu dögum ráðin þjálfari KA/Þórs í handknattleik kvenna. Akureyri.net segir frá.


Hún tekur við af Andra Snæ Stefánssyni sem ákvað að hætta í vor eftir að hafa náð frábærum árangri á síðustu þremur árum.

Arna Valgerður þekkir vel til í herbúðum KA/Þórs. Hún var til að mynda aðstoðarþjálfari KA/Þórs á síðustu leiktíð. Einnig lék Arna Valgerður með liðinu fyrir nokkrum árum en varð að hætta alltof snemma vegna meiðsla sem lengi höfðu sett strik í hennar reikning.

Með væntanlegri ráðningu Örnu Valgerðar til KA/Þórs verða tvær konur aðalþjálfarar í átta liða Olísdeildinni á næsta keppnistímabili. Sólveig Lára Kjærnested er þjálfari nýliða ÍR. Þar að auki verða a.m.k. þrjár aðstoðarþjálfarar, Díana Guðjónsdóttir hjá Haukum, Elíasbet Gunnarsdóttir með Stjörnunni og Rakel Dögg Bragadóttir hjá Fram.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -