- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Naumt tap í fyrsta úrslitaleiknum í Þýskalandi

- Auglýsing -

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe tapaði naumlega, 28:27, fyrir Borussia Dortmund í fyrsta úrslitaleik liðanna um þýska meistaratitilinn í handknattleik kvenna í dag. Leikið var í Dortmund. Blomberg-Lippe hafði þriggja marka forskot í hálfleik, 17:14. Næsti leikur liðanna verður í Ulmenallee Blomberg á sunnudaginn. Tvo sigra þarf til þess að vinna þýska meistaratitilinn.


Andrea Jacobsen skoraði 3 mörk, gaf 4 stoðsendingar, fiskaði 1 víti og var með 1 stolinn bolta.

Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 3 mörk, gaf 8 stoðsendingar, var með 2 sköpuð færi, fiskaði einn andstæðing af leikvelli, náði 1 frákasti og var einu sinni rekin af velli.

Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði 2 mörk, gaf 1 stoðsendingu og var einu sinni vikið af leikvelli.

Eftir að hafa verið þremur mörkum undir í hálfleik, 17:14, voru ekki liðnar nema sjö mínútur af síðari hálfleik þegar Dortmund hafði jafnað metin. Eftir það skiptust liðin á að vera með marki yfir. Blomberg-Lippe var síðast yfir, 26:25, þegar sjö mínútur voru til leiksloka.

Emma Olsson fyrrverandi leikmaður Fram skoraði tvö mörk fyrir Dortmund.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -