- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Níu marka sigur Gróttu gegn dauflegu Stjörnuliði

- Auglýsing -

Grótta vann stórsigur á Stjörnunni, 35:26, í þriðja úrslitaleik liðanna í umspili Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag. Grótta hefur þar með tvo vinninga en Stjarnan einn. Seltirninga vantar þar með einn sigur í viðbót til að vinna umspilið og öðlast sæti í Olísdeild kvenna og senda Stjörnuna í Grill 66-deildina.

Næsti leikur liðanna verður á heimavelli Gróttu, Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi, á sunnudaginn. Flautað verður til leiks klukkan 16.


Í dag var leikið í Hekluhöllinni í Garðabæ þar sem leikmenn Gróttu virðast kunna afar vel við sig en þeir unnu einnig fyrstu viðureign liðanna á sama stað í síðustu viku.

Grótta hóf leikinn af miklum myndugleik í dag og skoraði fjögur fyrstu mörkin og sex af fyrstu sjö mörkunum. Vigdís Arnar Hjartardóttir kom Stjörnunni loks á blað eftir hart nær sjö mínútur.

Að loknum 15 mínútum var Grótta sex mörkum yfir, 9:3. Í hálfleik var fjögurra marka munur, 15:11.

Snemma í síðari hálfleik stefndi í að leikurinn yrði jafn. Stjörnunni tókst að minnka muninn í eitt mark, 18:17. Nær komust leikmenn Stjörnunnar ekki. Sóknarleikur liðsins var með ósköpum gegn mjög góðri vörn Gróttu. Ekki bætti úr skák hversu mjög Stjarnan þrjóskaðist við að leika með sjö menn í sókn vegna þess að vopnin snerust svo sannarlega í höndum þeirra. Grótta skoraði um tug marka með skotum yfir allan leikvöllinn í autt mark Stjörnunnar og nánast niðurlægði heimaliðið.

Mörk Stjörnunnar: Vigdís Arna Hjartardóttir 6, Hanna Guðrún Hauksdóttir 6, Inga Maria Roysdóttir 4, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 3, Natasja Hammer 3, Þóra Hrafnkelsdóttir 2, Aníta Björk Valgeirsdóttir 1/1, Eva Björk Davíðsdóttir 1.
Varin skot: Margrét Einarsdóttir 10, 35,7% – Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 1, 20%.

Mörk Gróttu: Ída Margrét Stefánsdóttir 12/2, Elísabet Ása Einarsdóttir 4, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 4, Andrea Gunnlaugsdóttir 3, Guðrún Þorláksdóttir 3, Lilja Hrund Stefánsdóttir 3, Þóra María Sigurjónsdóttir 3, Edda Steingrímsdóttir 1, Katrín Arna Andradóttir 1, Katrín S Scheving Thorsteinsson 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 11, 30,6% – Anna Karólína Ingadóttir 2, 100%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -