Handknattleiksmaðurinn Símon Michael Guðjónsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við verðandi nýliða Olísdeildarinnar, HK. Símon Michael lék stórt hlutverk í liði HK sem varð deildarmeistari í Grill 66-deildinni á föstudagskvöldið. Hann er einnig einn af uppöldum leikmönnum félagsins sem mynda kjölfestuna í liði HK um þessar mundir.
Símon Michael, sem er bróðir Sigvalda Björns landsliðsmanns og leikmanns pólska stórliðsins Vive Kielce, skoraði 51 mark í 17 leikjum með HK á keppnistímabilinu.
„Það eru frábærar fréttir að halda þessum efnilega handboltamanni innan raða HK. Símon lék vel með HK í vetur og það verður spennandi að fylgjast með honum spreyta sig í Olís deildinni á næsta tímabili,“ segir í tilkynningu sem HK birti í morgunsárið.