- Auglýsing -
- Auglýsing -

Nýtt andlit í landsliðinu og annar valinn eftir langt hlé

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Guðmundur Þórður Guðmundsson hefur valið 17 leikmenn fyrir leiki A landsliðs karla í handknattleik gegn Litáen og Ísrael í undankeppni EM 2020. Einn nýliði er í hópnum, Óskar Ólafsson leikmaður Drammen í Noregi. Eins vekur athygli að vinstri hornamaðurinn Oddur Gretarsson, leikmaður Balingen í Þýskalandi, er í hópnum en hann hefur ekki verið í valinn keppnishóp fyrir einstök verkefni síðan hann lék með landsliðinu á EM 2012 í Serbíu.

Oddur hefur í einhver skipti síðan verið valinn í stærri úrtakshópa s.s. 28 manna hópa fyrir stórmót en ekki komið inn til æfinga.

Leikirnir í undankeppni EM fara báðir fram í Laugardalshöll.
Til stendur að leika tvo leiki hér heima í þessari landsliðsviku þar sem Ísraelsmenn óskuðu eftir að víxla heimaleikjum vegna ástandsins þar í landi og varð HSÍ við þeirri ósk.

Leikir Íslands í undankeppni EM í nóvember:
Mið. 4. nóv. kl. 19.45 Ísland – Litáen
Lau. 7. nóv. kl. 16.00 Ísland – Ísrael

Íslenski hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum:

Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Haukar, 229/13
Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG Håndbold, 17/0
Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson TBV Lemgo Lippe, 71/165
Oddur Gretarsson, HBW Balingen-Weilstetten, 18/31
Vinstri skytta:
Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad, 123/230
Aron Pálmarsson, FC Barça, 148/576
Daníel Þór Ingason, Ribe Esbjerg HH, 30/9
Óskar Ólafsson, Drammen, 0/0
Miðjumenn:
Elvar Örn Jónsson, Skjern Håndbold, 34/87
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg, 23/31
Janus Daði Smárason, Göppingen, 45/64
Hægri skytta:
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg, 46/129
Viggó Kristjánsson, TVB 1898 Stuttgart, 10/17
Hægra horn:
Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club, 113/327
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Kielce, 28/54
Línumenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT-Melsungen, 51/67
Ýmir Örn Gíslason, Die Rhein-Necker Löwen, 41/18

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -