Blomberg-Lippe tryggði sér í dag oddaleik við Borussia Dortmund um þýska meistaratitilinn í handknattleik kvenna með sigri í annarri viðureign liðanna á heimavelli, 28:27. Dortmund vann fyrsta leikinn með sömu markatölu fyrir viku. Oddaleikur liðanna fer fram eftir viku á heimavelli deildarmeistara Blomberg-Lippe þar sem leikið verður til þrautar um þýska meistaratitilinn.
Andrea skoraði þrjú mörk, gaf tvær stoðsendingar og var tvisvar sinnum vikið af leikvelli.
Díana Dögg skoraði þrjú mörk, gaf 7 stoðsendingar, var með 4 sköpuð færi, fiskaði einn andstæðing af leikvelli, vann 3 fiskuð vítaköst og vann eitt 1 frákast.
Elín Rósa skoraði 2 mörk, gaf 2 stoðsendingar og skapaði eitt færi.
Dortmund var marki yfir í hálfleik í viðureigninni í Sporthalle an der Ulmenallee, 14:13. Í hnífjafnri viðureign var það mark Alexia Hauf á síðustu sekúndum viðureignarinnar sem innsiglaði sigur heimaliðsins. Sigurmarkið og aðdragandann má sjá í myndskeiðinu hér fyrir neðan.



