- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Óheimilt verði að vera í þjálfarateymi landsliða og félagsliða á sama tíma

- Auglýsing -

Á 69. ársþingi Handknattleikssambands Íslands sem fram fór á föstudaginn var samþykkt ályktun frá ÍBV til frekari útfærslu stjórnar HSÍ þess efnis að þjálfarar sem starfa hjá A-landsliðum og U21 árs landsliðum Íslands skuli ekki vera þjálfarar eða hluti af þjálfarateymi íslenskra félagsliða.

Upphaflega var um að ræða tillögu að breytingu á lögum HSÍ. ÍBV dró lagabreytinguna til baka en í meðförum þingsins varð til ályktun til stjórnar um þetta efni.

Í greinargerð sem fylgdi þingskjali með lagabreytingunni, sem varð síðar að ályktun, segir: „Markmið tillögunnar er að draga úr mögulegum hagsmunaárekstrum og tryggja gagnsæi og jafnræði milli félaga þegar kemur að vali og undirbúningi landsliða.“

21 árs landslið kvenna er ekki til

Ljóst er að ef af þessu verður mun þetta snerta nokkuð nokkra sem starfa í kringum A-landslið karla og kvenna og þjálfa félagslið á sama tíma.

Ekkert 21 árs landslið karla er starfandi í ár þar sem ekki er mót í þeim aldursflokki fyrr en á næsta ári. Hins vegar hefur ekkert 21 árs landslið kvenna verið starfandi um margra ára skeið þar sem ekki er haldin alþjóðlega mót 21 árs landsliða kvenna, hvorki á vegum EHF né IHF. Elsti flokkurinn er 20 ára.

Sjá nánar hér: https://drive.google.com/file/d/1mRCyMWLIdnZWvT6WZ5jz1AZZr-u0cQAy/view

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -