Ólafur Rafn Gíslason markvörður ÍR hefur ákveðið að láta staðar numið á handboltavellinum og skórnir eru komnir upp í hillu eftir því sem sagt er frá í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍR. Ólafur Rafn kom til ÍR fyrir sex árum frá Stjörnunni. Hann hefur leikið ríflega 100 leiki fyrir meistaraflokk ÍR í báðum deildum Íslandsmótsins.
„Mig langar að nýta tækifærið og þakka öllum stuðningsmönnum ÍR fyrir ótrúlegan stuðning undanfarin ár. Minningarnar um tímann minn með félaginu verða ómetanlegar og er ég þakklátur fyrir að fá að upplifa það með ykkur.
Ég vil einnig þakka öllum þjálfurum, liðsfélögum og sjálfboðaliðum fyrir samstarfið.
Sama hvað næsti kafli hjá mér hefur í för með sér þá óska ég félaginu alls hins besta í framtíðinni og mun alltaf fylgjast með og styðja ÍR,“ er haft eftir Ólafi Rafni í tilkynningu ÍR.


