- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeild karla – 5. umferð, samantekt

Leikmenn Vals taka á móti Víkingi. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Fimmta umferð Olísdeildar karla í handknattleik hófst sunnudaginn 3. október og lauk á síðasta mánudagskvöld.

Helstu niðurstöður leikjanna eru þessar:

ÍBV - FH 26:25 (13:12).
Mörk ÍBV: Rúnar Kárason 5, Kári Kristján Kristjánsson 5/1, Gabríel Martinez Róbertsson 4, Dagur Arnarsson 3, Ásgeir Snær Vignisson 2, Sigtryggur Daði Rúnarsson 2, Róbert Sigurðarson 1, Dánjal Ragnarsson 1, Nökkvi Snær Óðinsson 1, Andrés Marel Sigurðsson 1.
Varin skot: Björn Viðar Björnsson 5, 26,3% – Petar Jokanovic 1, 8,3%.
Mörk FH: Birgir Már Birgisson 6, Einar Örn Sindrason 4, Egill Magnússon 4, Ásbjörn Friðriksson 3, Ágúst Birgisson 2, Jakob Martin Ásgeirsson 2, Jón Bjarni Ólafsson 2, Gytis Smantauskas 1, Leonharð Þorgeir Harðarson 1.
Varin skot: Phil Döhler 11/1, 29,7% – Svavar Ingi Sigmundsson 1, 100%.
  • Rúnar Kárason skapaði níu marktækifæri fyrir ÍBV í þessum leik sem fram fór í Vestmannaeyjum 3. október. Þar af voru átta stoðsendingar. Dagur Arnarsson var maðurinn á bak við sex marktækifæri, af þeim voru þrjár stoðsendingar. Hann vann einnig eitt vítakast.
  • Rúnar var líka umsvifamikill í varnarleiknum þar sem hann var með sjö lögleg stopp, eitt varið skot og tvo stolna bolta. Róbert Sigurðarson var rétt á eftir með fjórar löglegar stöðvanir auk þess sem hann varði tvö skot.
  • Færeyingurinn Dánjal Ragnarsson átti þrjú lögleg stopp í vörninni og Sigtryggur Daði Rúnarsson nappaði boltanum í tvígang af leikmönnum FH eins og Andrés Marel Sigurðsson.
  • Leikmenn ÍBV voru utan vallar í 6 mínútur.
  • Egill Magnússon og Gytis Smantauskas sköpuð fimm marktækifæri hvor fyrir FH-liðið. Egill var hinsvegar ekki með vel stillt miðið til markskota því aðeins fjögur af 13 skotum rötuðu í marknetið. Birgir Már Birgisson skoraði sex mörk úr sjö skotum, þar af voru tvö hraðaupphlaup.
  • Jakob Martin Ásgeirsson var með fjögur lögleg stopp í vörn FH og náði þess utan þremur fráköstum. Ásbjörn Friðriksson og Smantauskas náðu þremur löglegum stöðvunum hvor í vörninni auk þess sem sá síðarnefndi stal boltanum einu sinni af ÍBV-liðinu.
  • Leikmenn FH voru utan vallar í 6 mínútur.
  • Rúnar Kárason, ÍBV, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
Selfoss - Stjarnan 20:25 (11:11).
Mörk Selfoss: Einar Sverrisson 7/2, Hergeir Grímsson 4, Ísak Gústafsson 3, Gunnar Flosi Grétarsson 2, Karolos Stropus 2, Guðjón Baldur Ómarsson 1.
Varin skot: Sölvi Ólafsson 7/1, 25,9% – Vilius Rasimas 1, 16,7.
Mörk Stjörnunnar: Starri Friðriksson 7/1, Leó Snær Pétursson 6/3, Dagur Gautason 3, Sverrir Eyjólfsson 3, Gunnar Steinn Jónsson 2 (8 sköpuð færi), Hafþór Már Vignisson 2, Ari Sverrir Magnússon 2.
Varin skot: Adam Thorstensen 12/1, 54,5%. Sigurður Dan Óskarsson 0.
  • Ísak Gústafsson var maðurinn á bak við fimm marktækifæri Selfossliðsins í leiknum, þar af voru fjórar stoðsendingar. Einar Sverrisson og Hergeir Grímsson sköpuðu þrjú marktækifæri hvor. Hergeir vann tvö vítaköst.
  • Einar átti sex lögleg stopp í vörninni og náði að stela boltanum einu sinni af Stjörnuliðinu. Sama gerði Hergeir auk þess sem hann stöðvaði sóknarmenn Stjörnunnar fjórum sinnum á löglegan hátt samkvæmt tölfræði HBStatz.
  • Karolis Stropust og Ísak voru með þrjú stopp hvor auk þess sem Stropus krækti boltanum tvisvar af Stjörnunni. Ísak varði tvö skot.
  • Leikmenn Selfoss voru utan vallar í 2 mínútur.
  • Gunnar Steinn Jónsson lét til sín taka í sóknarleik Stjörnunnar, sem var væntanlega ein helsta ástæða þess að hann var fenginn til liðsins. Gunnar Steinn skapaði átta marktækifæri, af því voru sjö stoðsendingar.
  • Hafþór Már Vignisson átti fjórar stoðsendingar og vann þrjú vítaköst. Leó Snær Pétursson skapaði fimm marktækifæri, þar af voru tvær stoðsendingar. Starri Friðriksson skoraði sjö mörk í níu skotum og vann eitt vítakast.
  • Starri, Hafþór Már og Gunnar Steinn áttu hver um sig fjögur stopp í vörninni. Sverrir Eyjólfsson varði fjögur skot og Leó Snær stal boltanum tvisvar af Selfossliðinu.
  • Leikmenn Stjörnunnar voru utan vallar í 12 mínútur. Þar af fékk Þórður Tandri Ágústsson sína þriðju brottvísun eftir um 12 mínútna leik og kom af þeim sökum ekkert meira við sögu.
  • Leó Snær Pétursson, Stjörnunni, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
Einar Rafn Eiðsson, KA, og Alexander Örn Júlíusson háðu marga hildi í leiknum í KA-heimilinu á sunnudaginn. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
KA - Valur 26:35 (8:16). 
Mörk KA: Óðinn Þór Ríkharðsson 8/4, Einar Rafn Eiðsson 5, Arnór Ísak Haddsson 4, Jóhann Geir Sævarsson 2, Skarphéðinn Ívar Einarsson 2, Einar Birgir Stefánsson 1, Jón Heiðar Sigurðsson 1, Ólafur Gústafsson 1, Haraldur Bolli Heimisson 1. 
Varin skot: Bruno Benat 5, 21,7% – Nicholas Satchwell 4, 22,2%. 
Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 7, Tumi Steinn Rúnarsson 6/3, Vignir Stefánsson 5, Benedikt Gunnar Óskarsson4, Agnar Smári Jónsson 3, Einar Þorsteinn Ólafsson 3, Þorgils Jón Svölu Baldursson 3, Tjörvi Týr Gíslason 2, Tryggvi Garðar Jónsson 1, Þorgeir Bjarki Davíðsson 1. 
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 12, 52,2% – Sakai Motoki 2, 11,8%.
Arnór Ísak Haddsson reyndi hvað hann gat til þess að hressa upp á leik KA. Hér sækir hann að Tjörva Tý Gíslasyni. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
  • Einar Rafn Eiðsson skapaði níu marktækifæri fyrir lið KA gegn Val, af því voru þrjár stoðsendingar. Einnig vann hann eitt vítakast. Óðinn Þór Ríkharðsson var með fullkomna nýtingu í vítaköstum, fjögur mörk í fjórum tilraunum.
  • Arnór Ísak Haddsson skoraði fjögur mörk í fjórum tilraunum og vann þrjú vítaköst auk þess að skapa tvö marktækifæri. Í vörninni var Einar Rafn með sjö lögleg stopp og náði einu frákasti. Ólafur Gústafsson átti fjögur lögleg stopp og Einar Birgir Stefánsson þrjú. Óðinn Þór nappaði boltanum tvisvar af sóknarmönnum Vals.
  • Leikmenn KA voru utan vallar í 12 mínútur.
  • Arnór Snær Óskarsson skoraði sjö mörk í jafn mörgum skotum, tvö markanna voru eftir hraðaupphlaup. Eins átti hann tvær stoðsendingar. Yngri bróðir Arnórs Snæs, Benedikt Gunnar skapaði sjö marktækifæri, þar af voru sex stoðsendingar.
  • Nýliði landsliðshópsins, Einar Þorsteinn Ólafsson, skapaði fimm marktækifæri, allt stoðsendingar. Tumi Steinn Rúnarsson skapaði þrjú marktækifæri.
  • Alexander Örn Júlíusson lét til sína taka í vörninni eins og endranær. Hann var með átta lögleg stopp. Tjörvi Týr Gíslason var með fjögur stopp og varði auk þess eitt skot. Einar Þorsteinn stal boltanum fimm sinnum af leikmönnum KA sem lagði grunn að stoðsendingum hans sem voru jafn margar.
  • Leikmenn Vals voru utan vallar í 14 mínútur.
  • Arnór Snær Óskarsson, Val, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
Benedikt Gunnar Óskarsson lék vörn KA oft grátt. Hér hefur hann snúið á Allan Norðberg. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
Víkingur - Fram 25:27 (10:14).
Mörk Víkings: Jóhann Reynir Gunnlaugsson 7/4, Jóhannes Berg Andrason 6, Styrmir Sigurðsson 4, Hjalti Már Hjaltason 3, Guðjón Ágústsson 2, Arnar Steinn Arnarsson 1, Arnar Huginn Ingason 1, Benedikt Elvar Skarphéðinsson 1.
Varin skot: Jovan Kukobat 14, 34,1%.
Mörk Fram: Vilhelm Poulsen 7/3, Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 5, Breki Dagsson 4, Kristófer Dagur Sigurðsson 4/1, Stefán Darri Þórsson 2, Rógvi Dahl Christiansen 2, Kristófer Andri Daðason 1, Ólafur Jóhann Magnússon 1, Þorvaldur Tryggvason 1.
Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 18, 42,9%.
  • Jóhann Reynir Gunnlaugsson lét til sína taka í sóknarleik Víkings eins og flestum leikjum liðsins. Fyrir utan sjö mörk í 12 skotum skapaði hann sjö marktækifæri, átt tvær sendingar samherja sem urðu til þess að brotið var á þeim sem tók á móti og vítakast var dæmt. Eins skoraði Jóhann Reynir úr þeim fjórum vítaköstum sem hann spreytti sig á.
  • Jóhannes Berg Andrason skapaði fjögur marktækifæri, þar af var ein stoðsending. Styrmir Sigurðsson skoraði úr fjórum skotum og var með fullkomna nýtingu.
  • Andri Dagur Ófeigsson var með fimm löglega stopp í vörninni eins og Hjalti Már Hjaltason. Báðir stálu þeir boltanum einu sinni af leikmönnum Fram og Andri Dagur varði eitt skot.
  • Ólafur Guðni Eiríksson og Jóhannes Berg náðu fjórum löglegum stoppum hvor fyrir sig.
  • Leikmenn Víkings voru utan vallar í 6 mínútur.
  • Breki Dagsson og Vilhelm Poulsen voru mennirnir bak við þrjú marktækifæri hvor hjá Framliðinu. Ólafur Jóhann Magnússon og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson sköpuðu tvö marktækifæri hvor. Rógvi Christiansen vann þrjú vítaköst.
  • Þorvaldur Tryggvason náði fjórum löglegum stöðvunum í vörn Fram og varði auk þess eitt skot. Stefán Darri Þórsson, fyrirliði, stal boltanum í þrígang af leikmönnum Víkinga, var með tvær löglegar stöðvanir. Fjögur vítaköst voru dæmd á piltinn.
  • Leikmenn Fram voru utan vallar í 8 mínútur.
  • Lárus Helgi Ólafsson, Fram, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
Dómur er fallinn. Anton Gylfi Pálsson vísar Hannesi Grimm af leikvelli í viðureign Gróttu og Hauka. Mynd/Eyjólfur Garðarsson
Grótta - Haukar 25:32 (14:16).
Mörk Gróttu: Andri Þór Helgason 9/2, Birgir Steinn Jónsson 5, Sveinn Brynjar Agnarsson 4, Ívar Logi Styrmisson 3, Gunnar Dan Hlynsson 2, Lúðvík Thorberg Bergmann Arnkelsson 1, Igor Mrsulja 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 9, 22,5%.
Mörk Hauka: Stefán Rafn Sigurmannsson 8/5, Darri Aronsson 7, Heimir Óli Heimisson 5, Þráinn Orri Jónsson 3, Geir Guðmundsson 3, Tjörvi Þorgeirsson 2, Atli Már Báruson 2, Halldór Ingi Jónasson 2.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 5, 33,3% – Stefán Huldar Stefánsson 3, 16,7%.
Gróttumaðurinn Birgir Steinn Jónsson átti átta stoðsendingar sem skiluðu mörkum gegn Haukum. Hér freistar hann þess að senda boltann á Gunnar Dan Hlynsson. Haukarnir Darri Aronsson og Adam Haukur Baumruk verjast fimlega. Mynd/Eyjólfur Garðarsson
  • Birgir Steinn Jónsson var maðurinn á bak við níu marktækifæri Gróttu í leiknum við Hauka, þar af voru átta stoðsendingar. Hann skoraði einnig fimm mörk í tíu skotum. Andri Þór Helgason skoraði níu mörk og geigaði aðeins á einu skoti. Tvö markanna skoraði Andri Þór úr vítaköstum. Lúðvík Thorberg Bergmann Arnkelsson skapaði þrjú marktækifæri.
  • Birgir Steinn lét svo sannarlega til sín taka í vörninni. Hann náði átta löglegum stöðvunum og stal boltanum einu sinni af leikmönnum Hauka. Ólafur Brim Stefánsson átti fjögur lögleg stopp og stal boltanum í eitt skipti.
  • Sveinn Brynjar Agnarsson krækti boltanum tvisvar af Haukum og átti þrjár löglegar stöðvanir. Gunnar Dan Hlynsson gerði fyrrverandi samherjum í Haukum erfitt fyrir með þremur stoppum og einum stolnum bolta.
  • Leikmenn Gróttu voru utan vallar í fjórar mínútur.
  • Tjörvi Þorgeirsson átti fimm stoðsendingar á samherja sína í Haukum í leiknum í Hertzhöllinni. Geir Guðmundsson skapaði þrjú færi eins og Atli Már Báruson og Adam Haukur Baumruk. Aron Rafn Eðvarðsson skapaði tvö marktækifæri með sínum hnitmiðuðu sendingum fram leikvöllinn.
  • Geir var með flestar löglegar stöðvanir af leikmönnum Hauka, fimm. Darri Aronsson var skammt á eftir með fjórar. Þráinn Orri Jónsson varði eitt skot og Halldór Ingi Jónasson stal boltanum einu sinni af liðsmönnum Gróttu.
  • Leikmenn Hauka voru utan vallar í fjórar mínútur.
  • Birgir Steinn Jónsson, Gróttu, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
Geir Guðmundsson að skora eitt fimm marka sinna fyrir Hauka án þess að varnarmenn Gróttu eða Einar Baldvin Baldviðsson markvörður fái rönd við reist. Mynd/Eyjólfur Garðarsson
HK - Afturelding 28:30 (14:15).
Mörk HK: Kristján Ottó Hjálmsson 7, Hjörtur Ingi Halldórsson 5, Sigurður Jefferson Guarion 3/1, Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha 3, Pálmi Fannar Sigurðsson 2, Elías Björgvin Sigurðsson 2, Sigurvin Jarl Ármannsson 2, Einar Bragi Aðalsteinsson 2, Kristján Pétur Barðarson 1, Kári Tómas Hauksson 1.
Varin skot: Róbert 5 Örn Karlsson, 23,8 % – Sigurjón Guðmundsson 17,6%.
Mörk Aftureldingar: Þorsteinn Leó Gunnarsson 7, Árni Bragi Eyjólfsson 7/4, Guðmundur Bragi Ástþórsson 4, Úlfar Páll Monsi Þórðarson 3, Kristófer Máni Jónasson 3, Blær Hinriksson 2, Þrándur Gíslason Roth 1, Bergvin Þór Gíslason 1, Agnar Ingi Rúnarsson 1, Birkir Benediktsson 1.
Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 6, 28,6% – Andri Sigmarsson Scheving 3, 18,8%.
  • Hjörtur Ingi Halldórsson skapaði fimm marktækifæri fyrir HK í leiknum við Aftureldingu í Kórnum á mánudagskvöld. Af því voru fjórar stoðsendingar. Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha var maðurinn á bak við fjögur marktækifæri.
  • Pálmi Fannar Sigurðsson stöðvaði sóknarmenn Aftureldingar í átta skipti á löglegan hátt auk þess sem hann önglaði af þeim boltanum í þrjú skipti. Sigurður Jeffersen Guarino átti fjórar löglega stöðvanir.
  • Elías Björgvin Sigurðsson vann boltann í þrígang af leikmönnum HK og Hjörtur Ingi í tvígang en alls stal HK-liðið boltanum í ellefu sinnum af leikmönnum Aftureldingar. Kristján Ottó Hjálmsson átti fjórar löglega stöðvanir og stal boltanum einu sinni.
  • Leikmenn HK voru utan vallar í fjórar mínútur.
  • Guðmundur Bragi Ástþórsson skapaði þrjú marktækifæri fyrir Aftureldingu og Árni Bragi Eyjólfsson og Blær Hinriksson voru mennirnir af bak við tvö tækifæri hvor um sig.
  • Árni Bragi var með fullkomna nýtingu í vítaköstum, skoraði fjórum sinnum.
  • Þorsteinn Leó Gunnarsson átti þrjú lögleg stopp í vörn Aftureldingar, varði þrjú skot og stal boltanum tvisvar sinnum. Blær stal boltanum tvisvar sinnum af leikmönnum HK.
  • Leikmenn Aftureldingar voru utan vallar í 8 mínútur.
  • Samtals töpuðu leikmenn beggja liða boltanum í 30 skipti í leiknum.
  • Þorsteinn Leó Gunnarsson, Aftureldingu, var maður leiksins samkvæmt samantekt HBStatz.
  • Alla tölfræði leiksins er finna hja HBStatz.
  • Stöðuna og næstu leik í Olísdeild karla er að finna hér.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -